Description
Fríkirkjan – Lárus Halldórsson (1851-1908) fríkirkjuprestur stofnaði mánaðarritið Fríkirkjuna 1899 og gaf það út í þrjú og hálft ár. Fyrstu þrjú blöðin, janúar-mars, voru prentuð í Prentverki Jóns Ólafssonar, en þá var prentsmiðjan seld Davíð Östlund, sænskum aðventista, sem prentaði ritið þar til árið 1901, að séra Lárus Halldórsson keypti prentsmiðjuna af Davíð. Hann réð þá til sín faglærðan prentara frá Ísafirði, Stefán Runólfsson (1863-1936) sem varð forstjóri hennar næstu tvö árin. Fríkirkjan var tímarit til stuðnings frjálsri kirkju og frjálslyndum kristindómi. Bókin er bundin í grænt shirtingsband, alband með prentaðri rós að framan, Stærð: 21.5 X 14 cm, tíu fyrstu blöðin janúar – október 1899.
Á þessum árum var Aldar-prentsmiðjan eina nótnaprentsmiðja landsins, og þegar Davíð seldi Lárusi prentsmiðjuna og fór austur á Seyðisfjörð varð allt nótnaletrið eftir hjá Lárusi. Davíð kom svo aftur til Reykjavíkur 1904 og stofnaði Prentsmiðju „Frækorna“.
Útgáfa og prentun:
Útgefandi: Lárus Halldórsson.Kollaleiru, Reyðarfirði. Prentverk Jóns Ólafssonar jan.-mars 1899. Aldar-prentsmiðja Davíðs Östlund 1899-1901 og Aldarprentsmiðja Lárusar Halldórssonar 1901-1902.
Fágæti – Forngripur