KindArt
  • About KindArt
  • Videos
  • Store
    • Paintings
    • Books
    • Terms and conditions
    • KindArt Privacy Policy
  • Privately owned
  • Contact
  • Click to open the search input field Click to open the search input field Search
  • Menu Menu
  • Shopping Cart Shopping Cart
    4Shopping Cart
“Austan Elivoga” has been added to your cart. View cart
Arnfirðingur 1.árg.1.tbl.1901
Arnfirðingur neðri hluti forsíðu 1901Arnfirðingur aftan ,neðri hluti +neðanmálssaga

ARNFIRÐINGUR 1. árg. 1. tbl.

€34,10

1 in stock

Category: Books
  • Description

Description

ARNFIRÐINGUR 1. árg. 1. tbl., Pétur J. Thorsteinsson (1854-1929) stórútgerðarmaður á Bíldudal stofnaði blaðið Arnfirðing á Bíldudal og kom á fót prentsmiðju þar, sem nefndist eftir blaðinu og hét Prentsmiðja Arnfirðings. Hann hafði útvegað sér prentpressu frá Birni Jónssyni, eiganda Ísafoldar og nýtt letur frá útlöndum. Hann réð síðan Þorstein Erlingsson (1858-1914) skáld sem ritstjóra, en hann hafði verið ritstjóri Bjarka á Eskifirði árin á undan. Tilgangur Péturs með þessu var að efla menningu á suðurhluta fjarðanna og bæta í skarð Þjóðviljans, sem nú var fluttur til Bessastaða með Skúla Thoroddsen. – Arnfirðingur kom fyrst út í nóvember 1901 og var í stóru broti eða 41 x 28,5 cm, sem sýnir að pressan hefur verið nokkuð stór. Hann var aðeins prentaður á Bíldudal til 10. júlí 1902, alls 22 tölublöð, en eftir það var hann prentaður í Félagsprentsmiðjunni í Reykjavík þar til hann hætti að koma út í janúar 1903.
Heiðrún var sögusafn blaðsins Arnfirðingur og var það sem kallað var neðanmálssaga og umbrotin þannig að hægt var að klippa hana frá aðalblaðinu og búa til sjálfstæða bók. Þetta tíðkaðist mjög á þessum árum. Heiðrún kom út í tveimur hlutum og var hinn fyrri (s.1-64) prentaður á Bíldudal, en hinn síðari (1-56) syðra. Eftir því sem best er vitað var ekkert annað prentað á Bíldudal en Arnfirðingur og Heiðrún.

Útgáfa og prentun:
Eigandi og útgefandi: Prentfélag Arnfirðinga, 1901-1902, Bíldudal, Prentsmiðja Arnfirðings. – Reykjavík. Félagsprentsmiðjan

FÁGÆTI – Forngripur

Related products

  • The story of finnbogi hinn ramma 1860

    The story of Finnbogi hins ramma

    €40,92
    Add to cart Add to cart Add to cart Show Details Show Details Show Details
  • Malleysingjar kapa

    Dumb people

    €19,78
    Add to cart Add to cart Add to cart Show Details Show Details Show Details
  • Horpur kapa

    Harps sang there

    €10,23
    Add to cart Add to cart Add to cart Show Details Show Details Show Details
  • Ljodmaeli kapa

    Poetry

    €20,46
    Add to cart Add to cart Add to cart Show Details Show Details Show Details
KindArt | Gallery & Shop | Bæjarholt 1, Laugarás, 806, Selfoss | Id: 0904743839 | verslun@kindart.is | © 2020–2025
  • Link to Mail
  • Link to Facebook
  • Link to Instagram
Link to: Ástarljóð bílanna Link to: Ástarljóð bílanna Ástarljóð bílannaÁstarljóð bílanna Link to: Fríkirkjan Link to: Fríkirkjan Fríkirkjan bókFríkirkjan
Scroll to top