Description
Gömul blöð XIII. Tíu blöð frá ýmsum stöðum á landinu og frá ýmsum tímum.
Þingey er fyrsta prentaða blaðið sem var gefið út á Húsavík og það kom út 1.maí 1945.
Alþýðublaðið. II.árg 1907. Pétur G. áfram ritstjóri – Aðeins stærra en I.árg. sem kom út 1906. Skrifstofa og afgreiðsla í Austurstræti 10 í Reykjavík.
Framsóknarblaðið 1950. Útgefandi: Framsóknarflokkurinn í Vestnannaeyjum. Kom út 20. jan. 1950. Að mestu helgað stórslysinu þegar VS Helgi fórst á Faxaskeri 7. jan. 1950.
Gamanblaðið. 1917. Á forsíðu er sagt að það sé gefið út fólkinu til gamans. Þá er líka sagt hvað verkamaður hefur í laun, en það var 60 aurar á tímann eða 1 eyrir á hverja mínútu. Hér eru 6 fyrstu blöðin.
Vísis-drengurinn. Tvö blöð: Des.1913. 1.árg. 1.tbl. og 2.tbl Jan.1914 – Myndablað handa unglingum. Blaðið kostar 10 aura en árg. 90 aura.
Sunnudagaskólablaðið. 1948. Þetta blað er gefið út af Sunnudagaskóla Akureyrarkirkju og er sérstaklega ætlað börnunum. Það er prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar á Akureyri. Edvard Sigurgeirsson, ljósmyndari bjó út nafn blaðsins fyrir prentmyndagerðina.
Þveræingur. Reykjavík 1. maí 1945. Það var gefið út af Ólafi J. Hvanndal prentmyndasmið og fjallaði mikið um húsaleigumál, en á þessum árum voru þau í miklum ólestri í Reykjavík og víðar og margir bjuggu hermannabröggum. Á forsíðu er birt ræða Sigurðar Kristjánssonar, sem var flutt í tómum sal í sameinuðu Alþingi 2. mars 1945, skv. frásögn blaðsins á 1.bls.
Einar Þveræingur. Reykjavík 19.okt. 1918, 8.tbl. Ábyrgðarmaður blaðsins var Pjetur Lárusson, en útgefandi: Fjelag í Reykjavík. Blaðið kom út annan hvern dag og aukablöð eftir þörfum. Það kostaði 5 aura í lausasölu, en 50 aura mánaðarlega. Blaðið Einar Þveræingur fjallaði mest um Sambandslögin við Dani.
Ókindin. 19. mars 1976 2.tbl. 1.árg. Óháð blað sem kostar 200 kr. Virðist vera nokkurs konar spéblað um ríkisstjórn ólafs Jóhannessonar. Útgefandi: Sjón og saga sf.-Ábm.: Ewald Berndsen. Prentað í Fjarðarprent, Hafnarfirði.
Þingtíðindi um starf Sósíalistaflokksins á Alþingi. Ábm: Ísleifur Högnason. Þetta er hrafl af blaðinu. Vantar 6. og 12. tbl.af 13 tbl. – Var gefið út þegar Þjóðviljinn var bannaður af bresku herstjórninni og þingmaður og ritstjóri blaðsins o.fl. voru fluttir í breskt fangelsi.