Description
Réttur: 1.- 3. árg. 6 óbundin hefti , 1915-1918. Titilblöð og efnisyfirlit. Tímarit um félagsmál og mannréttindi. – Ritnefnd: Benedikt Jónsson frá Auðnum, Jónas Jónsson frá Hriflu, Þórólfur Sigurðsson í Baldursheimi, Páll Jónsson á Hvanneyri, Benedikt Bjarnarson í Húsavík, Bjarni Ásgeirsson í Knarrarnesi. – Í formála í fyrsta heftinu segir ritstjórinn að þær stefnur og viðfangsefni, sem ritið eigi að fjalla um, komi nokkuð í ljós í þeim ritgerðum, sem birtast í þessu fyrsta hefti, en að það þurfi fleiri menn – fleiri sjálfboðaliða undir merkið og hann væntir þess að fleiri góðir menn þjóðarinnar bregðist við til liðs vegna málefnanna. Loforð um það hefur fengist frá nokkrum mönnum og ennfremur hefur einn ritfærasti menntamaður af yngri kynslóðinni, dr. Sigurður Nordal heitið oss stuðningi segir Þórólfur.
Útgáfa og prentun:
Aðalútgefandi og ábyrgðarmaður: Þórólfur Sigurðsson 1915-1918 Akureyri. Prentsmiðja Odds Björnssonar.