Description
Þjóðólfur. Hálfsmánaðar- og vikublað Íslendinga. Frá nóvember byrjun 1853 – október loka 1854. Ábyrgðarmaður og kostnaðarmaður: Jón Guðmundsson. Það var stofnað 1848 og var í stærra broti en fyrri fréttablöð sem höfðu verið gefin út á Íslandi. Það var því fyrsta nútímalega fréttablaðið og hið fyrsta sem náði háum aldri og var í fararbroddi til 1874 þegar Ísafold kom út og síðan kom það út fram á annan áratug 20. aldar, en lognaðist þá út af. Það var reynt að endurreisa Þjóðólf seinna, fyrst á Suðurlandi 1917-1919, þegar Gestur Einarsson á Hæli keypti Þjóðólf og hann er prentaður í Prentsmiðju Suðurlands á Eyrarbakka og síðan á Haga í Sandvíkurhr. og á Selfossi í nokkur skipti. Gestur lést síðan um þetta leyti en áður samdi hann við Gutenberg um að prenta blaðið þar áfram. Hér eru nærri tveir árgangar bundnir inn í eina bók, stærð: 25 X 19 cm. Gamalt band og er bókin skorin að ofan og neðan en formeringar eru að framan.
Útgáfa og prentun:
Útgefandi: Jón Guðmundsson 1853 – 1864. Reykjavík. Prentun: Prentsmiðja Íslands, hjá Einari Þórðarsyni.