Skilmálar

KindArt áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna mistaka við verðlagningu. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Greiðslumáti
Í vefverslun KindArt er hægt að greiða fyrir vörur með kreditkorti. Greiðandi og viðtakandi þarf ekki að vera sá sami.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Sendingar
Innanlands sendum við vöruna að öllu jöfnu með pósti innan þriggja virkra daga. Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. KindArt ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send úr vefverslun KindArt og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Virðisaukaskattur
Málverk eru samkvæmt lögum undanþegin virðisaukaskattsskyldu og verðin eru því lokaverð án virðisaukaskatts.

Endurgreiðslur og vöruskil
Það er 14 daga skilafrestur á vörum KindArt og endurgreitt innan þriggja virkra daga frá skilum.

Ágreiningur
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskipta eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Vesturlands skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.