Um verkið
Allt í grænum sjó, bæklingur sem inniheldur fyrstu íslensku revíuna, sem var samin og sviðsett árið 1913 í Reykjavík. Sviðsetningin olli hneyksli meðal Reykvíkinga sem ekki áttu því að venjast að dregið væri dár af kunnum einstaklingum á leiksviði. Verkið var ritskoðað fyrir frumsýningu að kröfu yfirvalda en að henni lokinni lagði bæjarfógeti bann við frekari sýningum og varð sú ákvörðun afar umdeild. Vorið 1913 auglýsti Stúdentafélag Reykjavíkur sjónleik í þremur þáttum sem sagður var eftir „færustu höfunda landsins“. Um var að ræða fjáröflunarsýningu fyrir húsbyggingarsjóð félagsins. Síðar átti eftir að koma í ljós að höfundar þessir voru allir milli tvítugs og þrítugs: Andrés Björnsson, Sigurður Sigurðsson, Jón B. Norland, Guðbrandur Jónsson og Skúli Thoroddsen yngri. Mun verkið hafa verið samið heima hjá þeim síðastnefnda í Vonarstræti 12, á heimili foreldra hans Skúla og Theodóru Thoroddsen. *Wikipedia. Bæklingurinn er saumheftur og settur í kápu, 59 bls. og 17.5 X 11.4 cm að stærð.
Útgáfa og prentun:
Gamanleikurinn var síðan gefin út 13 árum seinna, 1926 í Reykjavík.. Útgefanda er ekki getið, en hann er prentaður í Prentsmiiðju Guðjóns Guðjónssonar, sem var gamla Eyrarbakkaprentsmiðjan sem Guðjón hafði keypt og sett niður að Laufásvegi 15. Prentsmiðjan hafði legið ónotuð í nokkur ár.
Fágæti.