Um verkið
Almanak 1875 – 1916, 11 bækur (forngripir) og 1923 – 1931, 3 bækur.
Þetta er Almanak Þjóðvinafélagsins þessi ár og er bundið í grunnfalsband í grænan shirting á kjöl og horn og gyllt á kjöl, klætt með grænleitum spjaldapappír í stíl.
Útgáfa og prentun:
Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags hefur komið út á hverju ári frá 1875, jafnan í lok árs. Það var að mestu prentað hjá J. H. Schultz í Kaupmannahöfn, en líka í Prentsmiðju Rosenbergs í Kaupmannahöfn. Síðan var það prentað hjá Prentsmiðjunni Gutenberg.