Um verkið
Garðyrkjuritið 1946. Þetta er gamalt hefti af garðykjuritinu frá árinu 1946. Ég gerðist félagi í Garðyrkjufélaginu þegar ég vann í garðyrkjustöð Ingimars í Fagrahvammi í tvö sumur á þessum árum og kynntist ég þá mörgum garðyrkjumönnum sem voru nýútskrifaðir garðyrkjumenn frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi, en þeir komu margir í vinnu til Ingimars á þessum árum. Ritið er saumheft og sett í gula kartonkápu, 23 X 16 cm að stærð og um 130 bls. auk nokkurra auglýsingablaðsíðna.
Útgáfa og prentun:
Garðyrkjufélag Íslands, 1946 Reykjavík Prentsmiðjan Edda.