Um verkið
Gömul blöð – IV. Hér eru boðin til sölu 5 norðlensk blöð frá ýmsum tímum. 3 af þeim eru yfir 100 ára gömul og því um forngripi að ræða.
Norðri. Blaðið var gefið út á Akureyri og var fyrsta blaðið sem var prentað eftir að prenteinokunin var rofin. Þetta er 6. árg. 30. nóv. 1858. Það birti innlendar og erlendar fréttir. Stærð: 25 X18.2 cm og 8 bls. Ritstjórar voru: Björn Jónsson og Jón Jónsson, en eigandi og útgefandi var Sveinn Skúlason. Norðri var prentaður í Prentsmiðju Norður- og Austurumdæmisins á Akureyri.
Norðurland. IX. Ár, 13. nóv. 1909. Stærð: 44 X 28.7 cm. Prentað í Prentsmiðju Odds Björnssonar Akureyri. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson læknir.
Fram. IV. ár 1. blað 5. jan. 1920. Stærð: 41.5 X 28.4 cm og 4 bls. Prentað í Siglufjarðarprentsmiðju. Ritstjóri: Sophus A. Blöndal. Fram var fyrsta blaðið sem gefið var út á Siglufirði, en Sophus tók við því af Friðbirni Níelssyni sem stofnaði það 1919. Fram var fréttablað sem kom út vikulega.
Verkamaðurinn. XXIV. árg. 24. maí 1941, 21. tbl. Stærð: 45 X 30 cm og 4 bls. Prentað í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Ábyrgðarmaður: Steingrímur Aðalsteinsson. Ritnefnd Steingrímur og Jakob Árnason. Vikublað. Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Mjölnir: 5. árgangur, 1. tbl. 8. jan. 1942. Stærð: 38.5 X 30 cm og 4 bls. Prentað í Siglufjarðarprentsmiðju. Útgefandi: Sósíalistafélag Siglufjarðar. Ábyrgðarmaður: Þóroddur Guðmundsson. Dagblað sem fjallaði mest um stjórnmál líðandi stundar og barðist fyrir réttindum alýðunnar á öllum sviðum.