Um verkið
Gömul blöð V. Í þessum pakka eru 5 Reykjavíkurblöð. 3 prentuð fyrir 1900, eitt nær hundrað ára og eitt rétt um miðja síðustu öld. Þetta eru því allt miklir kjörgripir og fáséð mjög.
Víkverji. 1873. 1. ár, 2. ársfjórðungur, 28. tbl.- Stærð: 28 X 17.2 cm og 4 bls. (opna). Prentað í Prentsmiðju Íslands, Bergmannsstofu í Aðalstræti í Reykjavík, prentari: Einar Þórðarson. – Ritstjóri: Páll Melsted. Vikublað um stjórnmál og landsmál. Blaðið var stofnað af Jóni Jónssyni landshöfðingjaritara. Útgefendur: Nokkrir menn í Reykjavík. Víkverji rann inn í Ísafold þegar hún hóf göngu sína, en hún var undanfari Morgunblaðsins, sem var stofnað 1913.
Suðri. 1883. 1. árg. 14. blað, 21. júlí 1883. – Stærð: 34.6 X 22.6 cm og 4 bls.. Prentað í Prentsmiðju Einars Þórðarsonar í Bergmannsstofu í Aðalstræti Reykjavík – Útgefendur: Einar Þórðarson og Kristján Ó. Þorgrímsson. Ritstjóri og ábm.: Gestur Pálsson. Hálfsmánaðarblað.
Reykvíkingur. VIII. árg. 6. júní 1898 – Stærð: 30.8 X 20.6 cm og 4 bls. Prentað í Prentsmiðju Dagskrár í Reykjavík. Útgefandi, ábm. og ritstjóri: W. (Valgarður) Ó. Breiðfjörð. Blaðið kom út einu sinni í hverjum mánuði.
Lesbók Morgunblaðsins. Sunnudaginn 13. des. 1925. – Stærð: 32.5 X 22.5 cm og 8 bls. Prentað í Ísafoldar-prentsmiðju. Greinar um menningarmál og bókmenntir. Fylgirit Morgunblaðsins. Ritstjórar þess voru Valtýr Stefánsson og Jón Kjartansson.
Mánudagsblaðið. Mánudagur 1. árg. 2.tbl. 11. okt. 1948. – Stærð: 45.3 X 28.2 cm og 8 bls. Vikublað sem kom út í 35 ár. Prentað í Prentsmiðju Þjóðviljans. Blaðið var hægrisinnað en ótengt stjórnmálaflokkum. Fastir liðir voru leiðari ritaður undir dulnefninu Kakali og leikhúsgagnrýni sem var oft mjög umtöluð. Ritstjóri alla tíð var Agnar Bogason.