Um verkið
Heiðrún – Nægtabúr Arnfirðings – Sögur og æfintýri af ýmsum löndum. Bók sem fylgdi blaðinu Arnfirðingur á Bíldudal. Hverju blaði fylgdi neðanmálssaga til fróðleiks og skemmtunar, sem hægt var að raða saman í bók. flytur sögur og æfintýri frá ýmsum löndum. Bókin er mjög lúin og mikið lesin, kápulaus, en blöðin eru þó heil og vantar ekki í þau, en saumgarnið er farið að trosna. Hún er alls 56 bls. og 18.3 X 13 cm að stærð. Þetta er fyrri hluti Heiðrúnar. var aðeins prentaður á Bíldudal til 10. júlí 1902, alls 22 tölublöð. – Seinni hlutinn var prentaður í Félagsprentsmiðjunni í Reykjavík en hætti að koma út í janúar 1903.
Útgáfa og prentun:
Eigandi og útgefandi: Prentfélag Arnfirðinga, 1901-1902, Bíldudal. Reykjavík. Prentsmiðja Arnfirðings.
SAGA Heiðrúnar og Prentsmiðju Arnfirðings
Bíldudal 1901 – 1902
Pétur J. Thorsteinsson (1854-1929) stórútgerðarmaður á Bíldudal var svili Skúla Thoroddsens (1859-1916) sýslumanns í Ísafjarðarsýslu. Konur þeirra Ásthildur og Theodóra voru systur. Pétur stofnaði blaðið Arnfirðing á Bíldudal og kom á fót prentsmiðju þar, sem nefndist eftir blaðinu og hét Prentsmiðja Arnfirðings.
Hann hafði útvegað sér prentpressu frá Birni Jónssyni, eiganda Ísafoldar og nýtt letur frá útlöndum. Hann réð síðan Þorstein Erlingsson (1858-1914) skáld sem ritstjóra, en hann hafði verið ritstjóri Bjarka á Eskifirði árin á undan. Tilgangur Péturs með þessu var að efla menningu á suðurhluta fjarðanna og bæta í skarð Þjóðviljans, sem nú var fluttur til Bessastaða með Skúla Thoroddsen.
Arnfirðingur kom fyrst út í nóvember 1901 og var í svipuðu broti og Fréttablaðið var á sínum tíma eða 41 x 28,5 sm, sem sýnir að pressan hefur verið nokkuð stór. Hann var aðeins prentaður á Bíldudal til 10. júlí 1902, alls 22 tölublöð, en eftir það var hann prentaður í Félagsprentsmiðjunni í Reykjavík þar til hann hætti að koma út í janúar 1903.
1) Arnfirðingur, 1.ár. 1.bl. Nóvember 1901. Prentsmiðja Arnfirðings. Bíldudal 1901.
2) Heiðrún. Nægtabúr Arnfirðings. Sögur og æfintýri af ýmsum löndum. Prentsmiðja Arnfirðings, Bíldudal 1901-2.
Heiðrún var sögusafn blaðsins Arnfirðingur og var það sem kallað var neðanmálssaga og umbrotin þannig að hægt var að klippa hana frá aðalblaðinu og búa til sjálfstæða bók. Þetta tíðkaðist mjög á þessum árum. Heiðrún kom út í tveimur hlutum og var hinn fyrri (s.1-64) prentaður á Bíldudal, en hinn síðari (1-56) syðra. Eftir því sem best er vitað var ekkert annað prentað á Bíldudal en Arnfirðingur og Heiðrún.