Um verkið
Íslensk smárit handa alþýðu. Þetta eru tvær bækur bundnar saman. Sú fyrri er Lilja eftir Eystein Ásgrímsson. Í formála B. Th. M. segir að Lilja sé hið dýrðlegasta kvæði, sem kveðið hefur verið á íslenska tungu, enda segir orðtækið: „öll skáld vildu Lilju kveðið hafa“. Nú er Lilja þó flestum Íslendingum ókunn. Smárit þessi byrja því með handhægri útgáfu af henni handa alþýðu. – Finnur Jónsson skrifar síðan smágrein um munkinn Eystein og kvæðið Lilju. – Þá kemur kvæðið, sem er 100 vísur og sú síðasta eins og sú fyrsta. – Seinni bókin heitir: Haustrigningar og er titluð sem H.F. Reykjavíkurannáll, en undirtitill heitir: Alþýðleg veðurfræði í fimm þáttum. Á hverri blaðsíðu leikritsins, að ofan og neðan er auglýsing um Smárasmjörlíki og Hjartaás-smjörlíki. – Bókin er bundin inn í handband, brúnt rexín og spjaldapappír í stíl. Stærð: 19.7 X 13 cm og + 32+112 bls.-Gott band.
Útgáfa og prentun:
Útgefandi: Bogi Th. Melsteð; Finnur Jónsson bjó Lilju til prentunar. 1913, Kaupmannahöfn. Prentun: Prentsmiðja S.L. Möllers. Seinna ritið var gefið út í Reykjavík 1925 og prentað í Prentsmiðjunni Acta.
Forngripur.