Um verkið
Jólagjöf Hauks. Lítið kver sem var gefið út sem jólagjöf með blaðinu Haukur á Ísafirði. Blaðið Haukur flutti alþýðlegan fróðleik, sögur og gamanmál. Það kom út á Ísafirði 1897-1915. Ritstjóri var Stefán Runólfsson prentari. Blaðið var í stóru broti, en þetta er lítið kver, eða pési: 17.7 X 10.7 cm og 48 bls og kápa. Í pésanum eru þrjár smásögur. Jólanóttin í hafnsögumannskofanum, Göfugmenni og Álfarnir í Eyrarhjalla.
Útgáfa og prentun:
Stefán Runólfsson, Ísafjörður 1897. Prentsmiðja Stefáns Runólfssonar.