Um verkið
Konan mín svonefnda eftir Richard Henry Savage. Bókin er 20 X 13.5 cm að stærð og 192 bls. Handsaumuð og sett í kartonkápu.
Útgáfa og prentun:
Sögusafn Þjóðviljans. Bessastaðir 1906. Prentsmiðja Þjóðviljans. Þetta eru líklega bókaleifar af neðanmálssögum frá Bessastöðum, sem seinna hefur verið reynt að koma í verð með því að brjóta þær og setja í hefti. Kápan utan um þetta var prentuð í Prentsmiðju Ágústs Sigurðssonar sem ekki var stofnuð fyrr en 1922.
Forngripur.