Description
FÆREYJAR, Ferðasaga og fróðleikur um land og þjóð, eftir 5, 13 ára drengi. Á framkápu er uppdráttur af eyjunum og dregin upp leiðin sem drengirnir fóru. Höfundar að ferðasögunni voru aðallega Jónas Eggertsson, sem var fv. fr.kv.stj. Máls og menningar að Laugavegi 20, þegar hún var þar, líklega þegar var verið að byggja hinum megin götunnar, að Laugavegi 18. Aðrir sem eiga greinar eru: Ásmundur Sigurjónsson fv. blaðamaður á Þjóðviljanum., Jóhann Gíslason,Þórður Þorkelsson, Gísli Guðmundarson (en hann á líklega flestar teikningarnar sem eru margar. Mikið af línuritum eru í bókinni: Um Stjórnarskipun, íbúatölu, stærð eyjanna, meðalhita, loftskeytastöðvar, atvinnuvegi, (útgerð, hlunnindi og iðnað), Fjöll, fiskútflutning, þorskafla eftir mannfjölda og sögulegt yfirlit eyjanna. Stærð: Heftið er 28.7 X 21.9 cm og 38 bls.
Útgefandi, Prentun:
Útgefanda er ekki getið, en búast má við að bókheftið hafi verið vélritað og síðan fjölritað og vírheft í kennslustofu Aðalsteins í Austurbæjarskólanum í Reykjavík. Þó er það alls ekki víst, því nokkrar fjölritunarstofur voru í Reykjavík á þessum árum t.d. Fjölritunarstofa Pjeturs G. Guðmundssonar o.fl.